Fyrst og fremst er það allra allra mikilvægasta sem er búið að ske!!
Ragna og Arnar eignuðust litla prinsessu 28.júní 

til hamingju með sætustu prinsessuna


sæta fjölskyldan


LANG SÆTUST

ég ætla að kalla hana Carmen sama hvað hún heitir

nema auðvitað að það verði Hólmfríður Svava sem ég og Bubba höldum með

Annað í fréttum.
- ég kláraði prófin og er nokkuð sátt með útkomuna
- ég er komin í sumarfrí

- fórum í bústað til Gumma með fullt fullt af fólki
- fórum í útilegu með systu og vinkonum hennar
- Guðrún er á Marmaris
- mamma og pabbi eru í hjólaferðalagi með "Sjaldan er bagi að bandi" get ekki beðið eftir að sjá myndir af frægu búningunum þeirra


- er að fara til Spánar eftir 2 vikur nákvæmlega - get ekki beðið

Bústaðarferðin var algjör snilld. Geggjað verður alla helgina og mikið brallað.
Tryggvi, Ásdís og ég vorum búin að plana keppni þar sem var skipt í tvö lið og fullt af leikjum/keppnum í gangi á laugardeginu. Og það þarf ekki að taka það fram að Rauða liðið - MITT LIÐ - vann auðvitað

- nema hvað?


á Snæfellsnesi

Strákarnir að sýna snilldartakta í blörðuleiknum

já þessi mynd er tekin á Íslandi - Íslandi sagði ég

hópurinn saman á ströndinni

við grilluðum sykurpúða og bjuggum til s'mores - besta hugmynd mín frá upphafi


Rauða liðið mitt - vinningsliðið


Við spiluðum jungle speed - snilldar spil

ætli tryggvi hafi verið að vinna??

Ásdís sæta
Útilegan var svaka skemmtileg. Komum á laugardagsmorguninn og Stefán fór beint í golf með Hilmi - á nýju golfskónum - og Halla hennar Ragnheiðar.
Stelpurnar skelltu sér í sund og í heimsókn til Auju á meðan, þar sem við heilsuðum upp á Thomas Ásgeir sem er vægast sagt alveg eins og pabbinn.
Um kvöldið var svo grillað og drukkið og farið í boðhlaup - og haldiði hvað - mitt lið vann - allavegana aðra keppnina. Ég tók þetta greinilega aðeins of alvarlega því ég vaknaði bólgin og aum á öklanum og haltra núna um allt

En allt í allt mjög gaman.

Frændsystkinin Hekla og Emil

Systa sæta

Hilmir ofurgrillari

Hekla Rán að borða maís - svaka dugleg

Ragnheiður - Systa og Hildur

Liðið MITT sem vann

liði hennar systu sem vann ekki!

Svo er ég búin að nýta góða veðrið í ferð á Austurvöll með Elsu og sitja úti á svölum og lesa bækur - fullt af þeim. Er byrjuð á bók nr.4 - ekki skólabækur

Búin að vera léleg að fljúga því FTI er í skoðun, en er að fara að bæta úr þessu í vikunni - skelli mér með Helgu og Elsu - ég lofa

Lag í spilun: Bicycle Race/Queen

þetta er komið nóg í bili.
love, fröken haltrandi